Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Verklok á nýjum hringvegi um Hornafjörð enn ótímasett

Verklok á nýjum hringvegi um Hornafjörð enn ótímasett

143
0
Fjórar nýjar brýr eru á 19 kílómetra nýjum vegkafla um Hornafjarðarfljót Ístak – Aron Örn Karlsson

Enn er bið á að umferð verði hleypt á nýja hringveginn um Hornafjarðarfljót. Framkvæmdir hafa staðið yfir frá 2020 en verkið hófst formlega árið 2017 með samningum við landeigendur.

Vegagerðin greindi frá því í fyrrasumar að framkvæmdum við nýjan hringveg um Hornafjörð myndi ljúka fyrir árslok. Vetrarveður kom í veg fyrir að það tækist að ljúka verkinu fyrir áramót og Vegagerðin tilkynnti að því yrði lokið í vor.

G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir að framkvæmdir séu ekki hafnar aftur. Verktaki bíði eftir að frost fari úr jörðu og lofthiti verði nægilegur til að leggja klæðninguna á kaflann sem út af standi. Eftir er að leggja seinna lag klæðningar á um tveggja kílómetra langan vegarkafla og verklok hafa ekki verið tímasett.

Nýi vegurinn styttir hringveginn um 12 kílómetra og einbreiðum brúm á hringveginum fækkar um þrjár. Framkvæmdir hafa staðið yfir frá 2020 enda er verkið viðamikið. Fjórar nýjar brýr voru smíðaðar og vegarkaflinn er um 19 kílómetra langur.

Nýi vegurinn er 19 kílómetra langur og styttir hringveginn um 12 kílómetra
Vegagerðin

Heimild: Ruv.is