Home Fréttir Í fréttum 07.07.2026 Vegagerðin býður út endurbyggingu Hringvegar um Hvolsvöll

07.07.2026 Vegagerðin býður út endurbyggingu Hringvegar um Hvolsvöll

22
0
Vegagerðin býður út endurbyggingu Hringvegar um Hvolsvöll
Mynd: hvolsvollur.is.

Vegagerðin býður út endurbyggingu Hringvegar um Hvolsvöll

Vegagerðin hefur boðið út endurbyggingu Hringvegar (1) um Hvolsvöll. Verkið felst í endurgerð um 800 metra langs kafla Hringvegar frá afleggjara að tengivirki Landsnets austur fyrir Dufþaksbraut í Rangárþingi eystra, ásamt endurbótum á gatnamótum og lagningu nýrra göngu- og hjólastíga.

Framkvæmdin nær einnig til gatnamóta við Hvolsveg og Hlíðarveg og er ætlað að bæta bæði umferðaröryggi og aðgengi fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Slitlag á nýjum vegkafla verður malbik.

Umfangsmiklar framkvæmdir

Helstu magntölur verksins eru:

  • Fyllingar: 5.000 m³
  • Skeringar: 15.000 m³
  • Ofanvatnslagnir: 1.200 m
  • Styrktarlag: 9.200 m³
  • Burðarlag: 1.400 m³
  • Malbik: 2.650 tonn
  • Umferðareyjar: 6.000 m²
  • Ljósastaurar: 46 stk.

Verkinu skal að fullu lokið fyrir 1. september 2027.

Tilboðum skilað 7. júlí

Útboðsgögn eru aðgengileg í rafræna útboðskerfinu TendSign frá 23. júní 2026.

Tilboðum skal skila rafrænt í TendSign fyrir klukkan 14:00 þriðjudaginn 7. júlí 2026. Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en bjóðendum verður tilkynnt um nöfn þátttakenda og fjárhæð tilboða að loknum tilboðsfresti.

Heimild: Vegagerðin