
Vanskilahlutföll hafa þrefaldast á hálfu ári
Alvarleg vanskil byggingariðnaðarins hjá stóru viðskiptabönkunum þremur hafa nær þrefaldast á fyrri helmingi ársins og námu 29,7 milljörðum króna um mitt ár, samanborið við 9,3 milljarða um síðustu áramót.
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins (SI), segir stöðuna sýna hversu mikið álag sé á greininni og varar við því að Seðlabankinn hækki vexti þegar peningastefnunefnd bankans tilkynnir næstu vaxtaákvörðun í vikunni, miðvikudaginn 19. ágúst.
„Þegar vanskilahlutfall þrefaldast á hálfu ári er ljóst að þolmörkin eru að nálgast hjá hluta greinarinnar,“ segir Sigurður í samtali við Morgunblaðið.
Heimild: Mbl.is
Efni: Vanskilahlutföll hafa þrefaldast á hálfu ári











