Home Fréttir Útboð 27.05.2026 Tjarnagata 12 – Innanhús Glerveggjakerfi – Útboð

27.05.2026 Tjarnagata 12 – Innanhús Glerveggjakerfi – Útboð

75
0
Mynd: Reykjanesbær

Útboð:

Reykjanesbær, fyrir hönd umhverfis- og framkvæmdasviðs, óskar eftir tilboðum í verkefnið: Tjarnargata 12 – Innanhúss glerveggjakerfi, útboð nr. 31_26-001

Umfang og lýsing á verki:

Verkið felur í sér hönnunarstýringu, afhendingu, uppsetningu og fullnaðarfrágang á innanhúss glerveggjakerfi með álprófílum. Kerfið skal sérstaklega hannað fyrir skrifstofurými þar sem gerðar eru ríkar kröfur um:

  • Hljóðvist og brunavarnir: Uppfylla skal gildandi kröfur samkvæmt teikningum og reglugerðum.
  • Gæði og endingu: Áhersla er lögð á stöðugleika, nákvæmni í frágangi og hámarks endingu í opinberu rými.

Efniskröfur og útlit

  • Efnisval: Álprófílar skulu vera úr álblöndu EN AW-6060 T6 eða sambærilegu.
  • Yfirborðsmeðhöndlun: Prófílar skulu vera duftlakkaðir með viðaráferð (eikarlíki). Húðun skal vera að lágmarki 60–80 μm að þykkt.
  • Útlit og áferð: Litur og munstur skal vera eins nálægt beinstrípaðri evrópskri eik og kostur er (sambærilegt við ABC Colorex Dekor, litur DAB D4P27).
  • Stefna viðaráferðar: Prent og æðar í viðarlíki skulu fylgja lengdarstefnu prófíla, nema annað sé sérstaklega tilgreint á hönnunargögnum.

Kerfiskröfur og vottanir

Glerveggjakerfið skal vera vottuð og iðnaðarframleidd heildarlausn með samþættum kerfishlutum (lóðréttum og láréttum prófílum ásamt T-listum/millistykkjum milli glerja).

  • Heildstætt kerfi: Kerfið skal vera prófað og vottað sem ein heild. Ekki er heimilt að setja saman kerfi úr ósamstæðum íhlutum frá mismunandi framleiðendum.
  • Frágangur: Allur frágangur skal vera í samræmi við ítrustu kröfur um fagmennsku og nákvæmni.

Áætluð lok framkvæmdatíma10.okt.2026

Vetfangsskoðun: Ef bjóðandi óskar eftir vettvangsskoðun skal hafa samband við innkaupastjóra Reykjanesbæjar í gegnum útboðsvef Reykjanesbæjar.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef BIDCO / Reykjanesbæjar á vefslóðinni: https://www.ntibidco.com/BidderMain/456/BidderBasic (undir flipanum opinber útboð) – frá kl. 12:00 þann 6.05.2026 . Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef BIDCO / Reykjanesbæjar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef BIDCO / Reykjanesbæjar eigi síðar en: Kl. 13:00 þann 27.05 2026.

 

Loading..