Útboð að hefjast í rannsóknahúsinu
Efnt verður til útboðs vegna innivinnu í rannsóknahúsi nýs Landspítala við Hringbraut í júlí og er gert ráð fyrir að framkvæmdir hefjist með haustinu.
Eins og vegfarendur á Hringbraut hafa tekið eftir standa nú yfir miklar framkvæmdir í nýbyggingum sunnan meðferðarkjarnans, annars vegar í nýju rannsóknahúsi og hins vegar í viðbyggingu Læknagarðs sem verður hús Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands.
Félagið NLSH ohf. stýrir verkefninu fyrir hönd félags sem heitir Fasteignir Háskóla Íslands.
Ólafur M. Birgisson, sviðsstjóri framkvæmdasviðs NLSH, sýndi blaðamanni og ljósmyndara svæðið í fyrradag. Við gengum fyrst inn Burknagötuna en borgarlínan mun aka um hana í framtíðinni.
Heimild: Mbl.is












