Uppsetningu 14 vindmylla er lokið
Starfsmenn þýska vindmylluframleiðandans Enercon luku á fimmtudag uppsetningu á síðustu vindmyllunni af þeim fjórtán sem reistar verða í Vaðölduveri í ár. Vaðölduver er neðan við Sultartangalón á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu. Uppsetning myllanna hófst síðari hluta maí og hefur verkið gengið vel. Í sumar hafa á bilinu 200–300 manns starfað á framkvæmdasvæðinu þegar mest hefur verið.
„Framkvæmdirnar hafa gengið vel og áætlanir staðist í helstu atriðum,“ segir Gunnar Aron Ólason, upplýsingafulltrúi nýframkvæmda hjá Landsvirkjun. Vindmyllurnar fjórtán eru fyrri áfangi Vaðölduvers. Gert er ráð fyrir að fjórtán myllur til viðbótar verði reistar á næsta ári og verða þær þá alls 28. Uppsett afl verður allt að 120 MW og áætluð meðalársframleiðsla um 440 GWst.












