
Uppbygging í Arnarholti bíður
Félagið Arnarholt fasteignir ehf. hefur kynnt fyrir skipulagsyfirvöldum í Reykjavík metnaðarfulla uppbyggingu íbúðahverfis á landi Arnarholts á Kjalarnesi.
Óskað er eftir afstöðu skipulagsfulltrúa til uppbyggingar á allt að 35 íbúðum í lágreistum tveggja hæða rað- og fjölbýlishúsum samkvæmt teikningum Arklands.
Það varð niðurstaða skipulagsfulltrúa að uppbygging við Arnarholt væri ekki tímabær að svo stöddu þar sem ekki lægi fyrir samþykkt hverfisskipulag eða deiliskipulag fyrir Grundarhverfi og nágrenni.
Fram kemur í umsögn verkefnastjóra skipulagsfulltrúa að efnt hafi verið til hugmyndaleitar fyrir þróunaráætlun/rammaskipulag fyrir svæðið.
Heimild:Mbl.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: 21.11.2024 Einbýlishúsalóðir á Kjalarnesi
Efni: Uppbygging í Arnarholti bíður











