Home Fréttir Í fréttum Tvær nýjar sánur í Salalaug

Tvær nýjar sánur í Salalaug

28
0
Tvær nýjar sánur í Salalaug
Tveir nýjir sánuklefar hafa verið opnaðir í Salalaug í Kópavogi. Samsett mynd/Kópavogsbær

Tvær nýjar sánur í Salalaug

Tveir nýir viðarklæddir sánuklefar opnuðu í Salalaug um helgina.

Annars vegar er um að ræða hefðbundna sánu með steinaofni. Í stað fötu og vatns er þó vatnsskammtari ofan við steinofninn.

Hægt er ýta á takka á 90 sekúndna fresti og þá sprautast vatn á steinana og hitinn og rakinn hækka.

Hins vegar er um að ræða svokallaða infrarauða sánu. Þar er rautt ljós sem hitar líkamann í stað raka.

Heiimild: Mbl.is

Infrarauð sána í Salalaug. Ljósmynd/Aðsend
Hefðbundinn sánaklefi í Salalaug. Ljósmynd/Kópavogsbær
Salalaug. Ljósmynd/Kópavogsbær
Sánaklefarnir opnuðu fyrir sundlaugagesti þann 25. júlí. Ljósmynd/Kópavogsbær