Home Fréttir Í fréttum Tré og straumur sér um fullnaðarfrágang hreinsistöðvar við Geitanes

Tré og straumur sér um fullnaðarfrágang hreinsistöðvar við Geitanes

66
0
Tré og straumur sér um fullnaðarfrágang hreinsistöðvar við Geitanes
Mynd: Árborg

Tré og straumur sér um fullnaðarfrágang hreinsistöðvar við Geitanes

Tré og straumur ehf. hefur skrifað undir samning við Fasteignafélag Árborgar slf. um fullnaðarfrágang hreinsistöðvar frárennslis við Geitanes.

Samningurinn var undirritaður 1. júní 2026 og markar mikilvægan áfanga í uppbyggingu mannvirkisins.

Uppsteypu burðarvirkis hreinsistöðvarinnar er þegar lokið og tekur nú við umfangsmikill fullnaðarfrágangur hússins og uppsetning tæknibúnaðar.

Umfangsmikill fullnaðarfrágangur

Verkið felur meðal annars í sér:

  • Uppsetningu vélbúnaðar
  • Lagningu lagna og tæknikerfa
  • Uppsetningu húskerfa
  • Fullnaðarfrágang töflurýmis
  • Frágang loftræsirýmis
  • Uppsetningu lífsíu (biofilter)

Jafnframt verður komið fyrir gönguleiðum úr heitgalvaníseruðu stáli samkvæmt hönnunargögnum.

Hurðir, lúgur og brunastigar

Hluti framkvæmdarinnar er uppsetning sérhæfðs búnaðar, þar á meðal:

  • Vatnsþéttrar hurðar milli þurrrýmis og votrýmis
  • Nýrra lúga
  • Brunastiga

Að utan verður gengið frá útveggjum, hurðum og gluggum þannig að mannvirkið verði fullbúið til reksturs.

Ráðgjöf og eftirlit

EFLA verkfræðistofa er ráðgjafi og hönnuður verkefnisins fyrir verkkaupa.

Byggingarstjórnun og framkvæmdaeftirlit er í höndum Verkfræðistofu Guðjóns Þ. Sigfússonar ehf.

Samkvæmt verksamningi er stefnt að því að framkvæmdum ljúki 30. desember 2026.

Heimild: Arborg.is