Home Fréttir Í fréttum 02.07.2026 Reykjanesbær„Tjarnargata 12 – Innréttingar og búnaður“ -Útboð

02.07.2026 Reykjanesbær„Tjarnargata 12 – Innréttingar og búnaður“ -Útboð

37
0
Tjarnargata 12 – Innréttingar og búnaður
Mynd: Reykjanesbær

Tjarnargata 12 – Innréttingar og búnaður

Tjarnargata 12 – Innréttingar og búnaður er nýtt útboð sem Reykjanesbær hefur auglýst fyrir hönd umhverfis- og framkvæmdasviðs sveitarfélagsins. Um er að ræða útboð nr. 31-26-003 sem nær til innréttinga og búnaðar í húsnæðinu að Tjarnargötu 12.

Útboðsgögn voru gerð aðgengileg 1. júní 2026 og er skilafrestur tilboða til 2. júlí 2026 kl. 13:00.

Fjölbreyttir verkþættir innifaldir

Verkið felur í sér afhendingu og uppsetningu innréttinga og búnaðar.

Helstu verkþættir eru:

  • Innréttingar
  • Bekkir og borð
  • Afgreiðsluborð
  • Skrautveggir, loft og hillur
  • Festingar fyrir skjái
  • Merkingar
  • Veggjaklæðning með eikaráferð

Vettvangsskoðun í boði

Vetfangsskoðun: Ef bjóðandi óskar eftir vettvangsskoðun skal hafa samband við innkaupastjóra Reykjanesbæjar í gegnum útboðsvef Reykjanesbæjar.

Tilboðum skilað rafrænt

Tilboð skulu sett fram samkvæmt tilboðsskrá og fylgja undirrituðu tilboðsblaði ásamt umbeðnum fylgigögnum.

Skila skal tilboðum með rafrænum hætti í gegnum útboðsvef Reykjanesbæjar fyrir kl. 13:00 þann 2. júlí 2026.

Tilboð verða opnuð rafrænt sama dag kl. 13:05.

Heimild: Reykjanesbær