Home Fréttir Í fréttum Enn ein mistökin tefja enduropnun á Brákarborg

Enn ein mistökin tefja enduropnun á Brákarborg

136
0
Leikskólinn stendur við Kleppsveg 150-152. Hann hefur staðið tómur frá 2024 þar sem framkvæmdir á húsnæðinu hafa tafist. mbl.is/sisi

Tafir hafa orðið á framkvæmdum við leikskólann Brákarborg en framkvæmdum við leikskólann átti að ljúka í síðasta mánuði.

Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg uppfylltu nokkrar rúður við inngang hússins ekki ýtrustu brunakröfur. Rúðunum verður skipt út snemmsumars að sögn borgarinnar.

Í svari borgarinnar segir að um sé að ræða mistök frá því að húsið var upphaflega endurgert. Leikskólinn Brákarborg hefur ítrekað ratað í fréttir vegna tafa á framkvæmdum.

Í lok árs 2021 festi Reykjavíkurborg kaup á húsnæðinu, sem áður var kynlífstækjaverslunin Adam og Eva. Ráðist var í miklar breytingar og flutti leikskólinn inn í ágúst 2022.

Heimild: Mbl.is