Home Fréttir Í fréttum Tafir í Borgar­túni næstu vikur

Tafir í Borgar­túni næstu vikur

54
0
Tafir í Borgar­túni næstu vikur
Einstefna verður í Borgartúni á milli Snorrabrautar og Þórunnartúns. Borgartún sést neðst á myndinni og húsin vinstra megin standa við Þórunnartún. Vísir/Egill

Tafir í Borgar­túni næstu vikur

Akstur um Borgartún til og frá Snorrabraut að Þórunnartúni verður á einni akrein næstu vikur. Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar hefur veitt Eykt ehf. leyfi til að nota aðra akgreinina til að fylla upp í skurð og ganga frá svæðinu en verið er að reisa hótel á þessum stað. Búast má við umferðartöfum þar á annatímum síðdegis og morgna.

Í tilkynningu þess efnis frá Reykjavíkurborg segir að leyfi hafi verið veitt til 21. desember fyrir afnotum af borgarlandi vegna vinnusvæðagirðinga og athafnasvæðis verktaka vegna vinnu við jarðvegsfyllingu meðfram nýbyggingu við Borgartún 1-3, þar sem nú sé um 1,5 metra breiður, nær lóðréttur uppgröftur.

Jafnframt þessu þurfi að ganga frá óvörðum 132 kílówatta rafmagnsstreng meðfram húsinu í samstarfi við Veitur, þar sem sérstakar öryggiskröfur gildi. Framkvæmdasvæði verði girt af og einni akrein Borgartúns lokað á milli Þórunnartúns og Guðrúnartúns.

Skýringarmynd af vef Reykjavíkurborgar.
Reykjavíkurborg

Tímastýrð umferðaljós muni stýra umferð úr gagnstæðum áttum fram hjá framkvæmdasvæðinu og aðgengi að bílastæðum við Borgartún milli umferðaljósanna lokað. Vinstri beygja frá Guðrúnartúni og Þórunnartúni inn á Borgartún verði óheimil. Hjáleið sé fyrir gangandi vegfarendur.

Heimild: Visir.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: 28.08.2025 Eykt ehf. óskar eftir tilboðum í niðurrif við Borgartún

Efni: Tafir í Borgar­túni næstu vikur