Tæplega 400 milljóna hagnaður hjá Bauhaus
Bauhaus segir samkeppnisumhverfið á íslenska markaðnum hafa orðið sífellt verðnæmara.
Bauhaus á Íslandi hagnaðist um 385 milljónir króna í fyrra samanborið við 212 milljóna króna hagnað árið 2024. Hagnaður félagsins var síðast meiri á Covid-árinu 2021, sem litaðist af því að neytendur juku útgjöld til endurmóta á heimilum sínum.
Stjórn félagsins leggur til að enginn arður verði greiddur vegna síðasta rekstrarárs, að því er segir í ársreikningi félagsins.
Tekjur byggingavöruverslunarinnar jukust um 5,7% og námu tæplega 5,4 milljörðum króna á síðasta ári. Rekstrarhagnaður (EBIT) jókst um meira en rúmlega 250 milljónir króna milli ára og nam 416 milljónum króna. Ársverk voru 87, óbreytt frá fyrra ári.
Í skýrslu stjórnar í nýbirtum ársreikningi segir afkoman í fyrra hafi áfram verið undir áhrifum af alþjóðlegri verðbólguþróun sem hafði í för með sér þrýsting á framlegð og heildarafkomu.
„Þar að auki hefur samkeppnisumhverfið á íslenska markaðnum orðið sífellt verðnæmara, sem hefur enn frekar neikvæð áhrif á þróun framlegðar […] Þrátt fyrir áskoranir á innlendum og alþjóðlegum mörkuðum, verðbólgu og gengissveiflur, erum við að skila traustri niðurstöðu á árinu.“
Árið 2025 var annað heila starfsár vefverslunar Bauhaus á Íslandi. Félagið segist ætla að halda áfram að fjárfesta í og efla vefverslunina á komandi árum.

Eignir Bauhaus slhf., sem er í eigu þýsku samstæðunnar, voru bókfærðar á rúmlega 2,6 milljarða króna í árslok 2025 og eigið fé var um 2 milljarðar.
Lambhagavegur fasteignafélag, sem er í eigu sömu aðila í gegnum eignarhaldsfélagið Anelytsparken Holding A/S, var með rúmlega 1,8 milljarða í eigið fé en bókfærðar eignir námu um 4 milljörðum króna í árslok 2025.
Ásgeir Bachmann, sem hafði gegnt starfi framkvæmdastjóra Bauhaus á Íslandi frá árinu 2014, lét af störfum í vor til að taka stöðu framkvæmdastjóra Lyfjavals.
Heimild: Vb.is
Efni: Tæplega 400 milljóna hagnaður hjá Bauhaus












