Synjaði umdeildu deiluskipulagi á Suðurlandsbraut
Nýi meirihlutinn í borgarstjórn synjaði í gær umdeildu nýju deiliskipulagi á Suðurlandsbraut eftir að það kom úr auglýsingu.
Það var lagt fram í Umhverfis- og skipulagsráði 15. apríl síðastliðinn en Sjálfstæðismenn fóru þá fram á frestun og var afgreiðslu málsins frestað fram yfir kosningar.
Í fundargerð í Umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar frá í gær kemur fram í bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins að ekki séu forsendur til að samþykkja fyrirliggjandi deiluskipulagstillögu fyrir Suðurlandsbraut af 1.lotu Borgarlínu.
Þar segir að tillagan þrengi að atvinnustarfsemi á svæðinu og byggi á forsendum samgönguuppbyggingar sem verði tekin til endurskoðunar á næstu vikum og mánuðum.
Telur rétt að endurmeta fyrirhugaðar framkvæmdir
„Suðurlandsbrautin gegnir lykilhlutverki í samgöngukerfi Reykjavíkur og mikilvægt er að breytingar á göturýminu taki mið af heildarhagsmunum borgarbúa, umferðarflæði, atvinnustarfsemi og aðgengi. Því telur meirihlutinn rétt að endurmeta fyrirhugaðar framkvæmdir á þessum kafla í samhengi við endurskoðun samgöngusáttmálans og framtíðarsýnar nýrrar borgarstjórnar um þróun samgangna í Reykjavík áður en teknar eru ákvarðanir sem hafa varanleg áhrif á einn mikilvægasta samgönguás borgarinnar,“ segir meðal annars í bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins.
Harma að tillagan hafi verið felld
Í bókun fulltrúa Samfylkingarinnar er harmað að tillaga að deiluskipulagi Suðurlandsbrautar hafi verið felld og með því sé bráðnauðsynlegum samgöngubótum stefnt í uppnám og innleiðing Borgarlínu tafin verulega með því að setja hönnunarferlið á Suðurlandsbraut aftur á byrjunarreit.
Heimild: Mbl.is
Efni: Synjaði umdeildu deiluskipulagi á Suðurlandsbraut












