Home Fréttir Í fréttum Sundlaugagarður í Laugardalnum

Sundlaugagarður í Laugardalnum

82
0
Sundlaugagarður í Laugardalnum
Þakið á Laugum er í forgrunni myndarinnar, vatnagarður fyrir miðju og á bak við hann hótel. Þá er búið að teikna potta og gufur. Hugmyndin hefur ekki verið fullunnin en hún sýnir hvernig hægt væri að endurnýja svæðið. Mikill vöxtur ferðaþjónustu skapar grundvöll fyrir hærra þjónustustig. Teikningar/ONNO

Sundlaugagarður í Laugardalnum

Björn Leifsson, stofnandi og einn eigenda World Class, segir fyrirhugað niðurrif á hluta áhorfendastúkunnar við Laugardalslaug skapa tækifæri til að endurskipuleggja umhverfi laugarinnar.

Tilefnið er að fimm pottum sunnan stúkunnar hefur verið lokað vegna alkalí- og tæringarskemmda í steypu og burðarvirki. Sömuleiðis hefur gufubaðinu undir stúkunni verið lokað. Af þessum sökum er verið að undirbúa niðurrif á hluta stúkunnar.

Björn, sem opnaði Laugar árið 2004, kom snemma auga á tækifæri til að nýta laugarsvæðið betur. Lét hann því vinna hugmynd árið 2007 að endurgerð svæðisins sem hér er dustað rykið af.

Heimild: Mbl.is