
Stúkan umdeilda hafi hátt varðveislugildi
„Þetta mannvirki hefur ekki enn náð þeim aldri að falla undir verndarákvæði laga um menningarminjar þannig að það er ekki sjálfkrafa friðað,“ segir Þór Ingólfsson Hjaltalín, sviðsstjóri minjavarðasviðs Minjastofnunar Íslands, í samtali við Morgunblaðið um áhorfendastúkuna við Laugardalslaug sem Einar Sveinsson arkitekt teiknaði á sínum tíma ásamt lauginni upp úr miðri síðustu öld. Eitt kennileita Reykjavíkur.
Heimild: Mbl.is











