Home Fréttir Í fréttum Stórt skref í fráveitumálum í Höfnum

Stórt skref í fráveitumálum í Höfnum

55
0
Mynd: Reykjanesbær

Stórt skref í fráveitumálum í Höfnum

Reykjanesbær hefur tekið í notkun nýja lífræna fráveituhreinsistöð í Höfnum. Með tilkomu stöðvarinnar er stigið stórt skref í fráveitumálum sveitarfélagsins, en stöðin þjónustar um 80% fráveitu í Höfnum.
Áður fór skólp frá svæðinu óhreinsað til sjávar en með nýju stöðinni fer það nú í gegnum lífrænt hreinsiferli áður en hreinsuðu frárennsli er veitt til sjávar. Hreinsistöðin hefur afkastagetu upp á um 22 m³ og er miðuð við um 100 persónueiningar (PE). Að lokinni hreinsun er vatnið um 98% hreint.
Stöðin byggir á WPL HiPAF-tækni þar sem hreinsunin fer fram í þremur meginþrepum. Fyrst eru föst efni og seyra skilin frá með botnfellingu. Því næst tekur við lífræn hreinsun þar sem örverur brjóta niður lífræn efni í skólpinu með aðstoð loftunar. Að lokum fer fram lokabotnfelling áður en hreinsað vatnið er leitt til sjávar.
Mynd: Reykjanesbær
Iðnver ehf. seldi Reykjanesbæ hreinsistöðina og búnað henni tengdan. Rekan ehf. var aðalverktaki við framkvæmdina og sá um uppsetningu og framkvæmdir á staðnum.
Meginhluti hreinsistöðvarinnar er neðanjarðar og því eru sjónræn áhrif hennar lítil. Hreinsieiningin sjálf er um níu metrar að lengd og tæpir þrír metrar á breidd, auk búnaðar fyrir loftun og stjórnun kerfisins.
Verkefnið markar verulega breytingu frá fyrra fyrirkomulagi. Þar sem áður var engin hreinsun á frárennslinu fer það nú í gegnum lífræna hreinsun sem dregur verulega úr mengunarálagi áður en vatninu er veitt til sjávar. Með framkvæmdinni hefur því orðið mikil framför í fráveitumálum á svæðinu og um leið er verið að bæta umhverfisvernd og styrkja innviði sveitarfélagsins til framtíðar.
Heimild: Reykjanesbær
Efni: Stórt skref í fráveitumálum í Höfnum