Home Fréttir Í fréttum Stórhýsi Alvotech rísi á Granda

Stórhýsi Alvotech rísi á Granda

40
0
Stórhýsi Alvotech rísi á Granda
Á þessari mynd og þeirri næstu má sjá stórhýsi Alvotech frá tveimur sjónarhornum. Á þessari mynd er horft til suðausturs í átt að Gömlu höfninni.

Stórhýsi Alvotech rísi á Granda

Byggja á stórhýsi undir starfsemi líftæknifyrirtækisins Alvotech við Fiskislóð á Granda.

Morgunblaðið sagði fyrst frá þessum áformum í september 2025. Skipulagsfulltrúi tók jákvætt í þessar hugmyndir og kom með ábendingar varðandi frekari vinnu við deiliskipulag lóðanna.

Nú eru þessi áform komin á næsta stig og tekið tillit til ábendinganna. Vísaði skipulagsfulltrúinn málinu til umhverfis- og skipulagsráðs borgarinnar til afgreiðslu.

Lóðirnar Fiskislóð 33-37 standa á landfyllingu við sjóinn og ná frá bílaþvottastöðinni Löðri að húsi Brimrúnar í jaðri olíubirgðastöðvarinnar.

Heimild: Mbl.is