
Stóra-Hraun tekur við af Litla-Hrauni
Rúmir fjórir milljarðar króna af áætluðum kostnaði við fyrsta áfanga nýs fangelsis á Stóra-Hrauni fara í jarðvinnu, lóð og mannvirki á lóð.
Áætlaður kostnaður við fyrsta áfanga fangelsisins á Stóra-Hrauni í Árborg nemur tæpum 17,8 milljörðum króna. Þar af eru 3,03 milljarðar ætlaðir í lóð og mannvirki á lóð og rúmir 1,1 milljarður í jarðvinnu.
Fangelsismálastofnun rekur fjögur fangelsi á Íslandi, tvö lokuð og tvö opin. Stærsta fangelsið er Litla-Hraun á Eyrarbakka, sem hefur verið starfrækt frá árinu 1929 og rúmar allt að 83 karlfanga.
Hitt lokaða fangelsið er á Hólmsheiði en opnu fangelsin eru á Kvíabryggju og Sogni. Nýja fangelsið á Stóra-Hrauni mun svo leysa Litla-Hraun af hólmi.
Upphaflega stóð til að ráðast í umfangsmiklar endurbætur á Litla-Hrauni en við ástandsskoðun árið 2023 kom í ljós að byggingarnar voru mun verr farnar en áður hafði verið talið og í kjölfarið var ákveðið að reisa nýtt fangelsi.
Samkvæmt áætlunum dómsmálaráðuneytisins verður Litla-Hraun áfram starfrækt þegar fyrsti áfangi Stóra-Hrauns verður tekinn í notkun, en áætlað er að honum ljúki árið 2031.
Heimild: Vb.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Forsætisráðherra vill sjá nýtt fangelsi á Stóra Hrauni sem fyrst
Efni: Stóra-Hraun tekur við af Litla-Hrauni











