Home Fréttir Í fréttum Stór áfangi náðist í framkvæmdum við Vaðölduver

Stór áfangi náðist í framkvæmdum við Vaðölduver

158
0
Vaðölduver
Myndir: Ístak hf.

Mikilvægum áfanga var náð í framkvæmdum Ístaks við Vaðölduver miðvikudaginn 13. maí 2026 þegar holplötur sem mynda þak stærsta spennarýmis Safnstöðvarhússins voru hífðar á sinn stað.

Með þessum áfanga er nú komið þak á allt Safnstöðvarhúsið sem gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu virkjunarinnar.

Spennubreyti upp á 200 tonn verður í húsinu

Í Safnstöðvarhúsinu verður meðal annars komið fyrir 200 tonna spennubreyti sem tekur við orku frá vindmyllunum og tengir hana áfram inn á háspennudreifikerfið.

Framkvæmdir við húsið eru því stór þáttur í innviðauppbyggingu Vaðölduvers og tengingu virkjunarinnar við raforkukerfið.

Mikill kraftur í framkvæmdunum síðustu vikur

Samkvæmt upplýsingum frá framkvæmdaraðilum hefur verið mikill gangur í framkvæmdunum undanfarnar vikur þar sem starfsmenn Ístaks og undirverktakar hafa unnið þétt saman að því að ná þessum mikilvæga áfanga.

Af því tilefni var haldin grillveisla fyrir starfsfólk á verkstaðnum þar sem árangrinum var fagnað í góðu veðri.

„Meira að segja vindurinn í Vaðöldu tók sér stutta pásu þann daginn,“ sagði í tilkynningu frá verkefninu.

Heimild: Istak.is