
Stjórnarráðslóðin fer fyrir dóm
Stofnað verður á næstunni til eignardómsmáls fyrir héraðsdómi til að sanna eignarhald á lóðinni Lækjargötu 1 sem var hluti af Arnarhólsjörðinni í Reykjavík.
Á lóðinni er Stjórnarráðshúsið, reist sem fangelsi og tekið í notkun 1771.
Danska ríkið stóð að byggingu hússins sem komst í innlenda eigu þegar Íslendingar fengu stjórnarskrá árið 1874.
Gamla tukthúsið
Byggingin á Arnarhólstúni var tukthús frá því smíði lauk fram til ársins 1813 og eftir það embættisbústaður stiftamtmanns, en sá var fulltrúi Danakonungs á Íslandi og æðstur embættismanna á Íslandi. Með stjórnarskrá tóku við landshöfðingjar á Íslandi og frá upphafi heimastjórnar árið 1904 hafa forsætisráðherrar Íslands haft skrifstofu sína í þessu reisulega húsi við Lækjargötuna.
Heimild: Mbl.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Karína ehf. fær jarðvinnu við Stjórnarráðshúsið fyrir 35,8 milljónir
Efni: Stjórnarráðslóðin fer fyrir dóm











