
Stefna á að opna nýju böðin í sumar
Fjöldi hótelbústaða mun rísa á Árhólmasvæðinu við rætur Reykjadals þar sem Reykjaböðin verða opnuð. Framkvæmdir hafa staðið yfir frá árinu 2024 en alls mun ferðaþjónustusvæðið telja um 11 þúsund fermetra.
Eigendur Reykjabaðanna binda vonir við að hægt verði að opna böðin í ágúst eða september.
Framkvæmdir hafa staðið yfir frá árinu 2024 en böðin eru fyrsti áfanginn í umfangsmikilli ferðaþjónustuuppbyggingu á Árhólmasvæðinu í Hveragerði við rætur Reykjadals.
Í tilkynningu um Reykjaböðin í september 2024 kom fram að alls myndi ferðaþjónustusvæðið telja 11 þúsund fermetra.
Á næstu dögum verður jafnframt stefnt að því að koma fyrir fimmtán hótelbústöðum á Árhólmasvæðinu. Bústaðirnir koma fullbúnir til landsins með flutningaskipi og verða fluttir frá Þorlákshöfn til Hveragerðis í byrjun næstu viku. Því næst þarf að koma þeim fyrir á grunni og tengja þá við lagnir og rafmagn. Fleiri bústaðir gætu síðar bæst við.

– Reykjaböðin
Hljóðvegur 1 heimsótti svæðið á dögunum og fékk að forvitnast um gang framkvæmdanna og hvernig böðin munu líta út þegar þeim lýkur.
Brynjólfur J. Baldursson, einn af eigendum Reykjabaðanna, tók á móti Hólmfríði Maríu. Hægt er að hlusta á viðtalið í spilaranum hér fyrir neðan.
Heimild: Ruv.is
Efni: Stefna á að opna nýju böðin í sumar











