Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Staða framkvæmda við Grensásdeild Landspítala

Staða framkvæmda við Grensásdeild Landspítala

78
0
Staða framkvæmda við Grensásdeild Landspítala
Mynd: NLSH.is

Staða framkvæmda við Grensásdeild Landspítala

Framkvæmdir við stækkun Grensásdeildar halda áfram samkvæmt áætlun og eru nú á lokastigi. Byggingin er veðurþétt og ytri frágangi að mestu lokið. Unnið er að síðustu verkþáttum utanhúss samhliða áframhaldandi innri frágangi.

Innanhúss eru framkvæmdir langt komnar. Uppsetning innréttinga og búnaðar heldur áfram víðs vegar um húsið og lokafrágangur stendur yfir á raf-, lagna- og stjórnkerfum. Jafnframt er unnið að frágangi yfirborða, prófunum einstakra kerfa og undirbúningi fyrir heildargangsetningu byggingarinnar.

Á næstu mánuðum verður megináhersla lögð á gangsetningu og samþættar prófanir tæknikerfa, ásamt úttektum og staðfestingu á virkni þeirra. Sú vinna er lykilþáttur í að tryggja að öll kerfi uppfylli kröfur um öryggi, gæði og rekstrarhæfni áður en húsnæðið verður tekið í notkun.

„Framkvæmdir ganga vel og verkefnið er áfram á áætlun. Fram undan er umfangsmikill áfangi þar sem tæknikerfi verða gangsett og prófuð áður en húsnæðið verður afhent. Markmiðið er að tryggja að öll kerfi virki eins og til er ætlast og að húsnæðið verði tilbúið til notkunar samkvæmt áætlun,“ segir Kristinn Jakobsson, verkefnastjóri hjá NLSH.

Heimild: NLSH.is