Home Fréttir Í fréttum Sprengjusérfræðingar að sunnan kallaðir til í Vaðlaheiði

Sprengjusérfræðingar að sunnan kallaðir til í Vaðlaheiði

59
0
Sprengjusérfræðingar að sunnan kallaðir til í Vaðlaheiði
Lækur sem varð til við gerð Vaðlaheiðarganga er vinsæll baðstaður heimamanna og ferðamanna. RÚV – Eva Björk Benediktsdóttir

Sprengjusérfræðingar að sunnan kallaðir til í Vaðlaheiði

Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar voru kallaðir til í vikunni vegna þess sem talið var að væri sprengja við Vaðlaheiðargöng. Hluturinn reyndist vera búnaður sem var notaður við gerð ganganna.

Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar flugu til Akureyrar í vikunni vegna þess sem talið var mögulegt að væri sprengja í heitum læk sem rennur rétt neðan við op Vaðlaheiðarganga vestan megin.

Erlendir ferðamenn gerðu lögreglu viðvart á fjórða tímanum í gær eftir að þeir fundu hlutinn í læknum. Talsvert viðbragð var en ekki var farið í víðtækar lokanir, að sögn lögreglu. Fljótlega var talið ólíklegt að hluturinn gæti sprungið af sjálfsdáðum.

Lækurinn myndaðist þegar bormenn í Vaðlaheiðargöngum lentu á heitri vatnsæð við gerð ganganna og hefur síðan verið vinsæll baðstaður bæði heimamanna og ferðamanna sem eiga leið um svæðið.

Lögreglan á Akureyri segir að fylgt sé ákveðnu verklagi þegar slíkar tilkynningar berast og haft hafi verið samband við sprengjusérfræðinga sérsveitar ríkislögreglustjóra.

Talið var að það þyrfti að fá sprengjusérfræðinga Landhelgisgæslunnar í verkið eftir að myndir bárust frá lögreglunni á Akureyri. Þeir komu með þyrlu til Akureyrar á áttunda tímanum.

Til eru ýmsar gerðir af pökkurum.

Lögregla segir að hluturinn hafi sannarlega litið út fyrir að geta verið sprengja, jafnvel frá því í seinna stríði. En hann reyndist vera svokallaður pakkari, sem eru notaðir við jarðgangagerð, og hefur því líklega borist með heita vatninu úr göngunum og niður lækinn.

Til eru ýmsar gerðir af pökkurum en sá sem þarna fannst var um 30 sentimetrar á lengd, ílangur og mjókkaði í annan endann.

Aðgerðum á vettvangi lauk á níunda tímanum í um kvöldið.

Heimild: Ruv.is

Efni: Sprengjusérfræðingar að sunnan kallaðir til í Vaðlaheiði