Spá aukinni veltu eftir kaupin
Áætlað er að velta sameinaðrar starfsemi Rafholts árið 2026 muni nema yfir 6 milljörðum króna.
Rafverktakafyrirtækið Rafholt hagnaðist um 280 milljónir króna í fyrra, samanborið við 334 milljóna hagnað árið áður.
Tekjur fyrirtækisins námu 3.886 milljónum, sem er 8% samdráttur frá fyrra ári. Í desember undirritaði félagið samkomulag um kaup á orku- og innviðasviði Origo hf. (Kraftur og Kæling) og voru þau viðskipti fullnustuð í lok mars 2026 með útgáfu á nýju hlutafé. Áætlað er að velta sameinaðrar starfsemi Rafholts árið 2026 muni nema yfir 6 milljörðum króna, að því er segir í ársreikningi.
Rekstrargjöld námu 3.517 milljónum og drógust saman um 7% milli ára. Laun og launatengd gjöld námu 1.997 milljónum, sem er 16% aukning milli ára, en ársverk voru 139, samanborið við 131 árið áður.
Eignir félagsins voru bókfærðar á 845 milljónir í árslok 2025, samanborið við 996 milljónir í lok árs 2024, og eigið fé fór úr 630 milljónum í 460 milljónir. Stjórn leggur til að enginn arður verði greiddur til hluthafa en arðgreiðslan nam 450 milljónum í fyrra. Helgi Rafnsson er framkvæmdastjóri og einn eigenda Rafholts.
Heimild: Vb.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Aldir kaupa 70% hlut í Rafholti
Efni: Spá aukinni veltu eftir kaupin












