Skrifstofa lögmanna verði hótel
Lögmannafélag Íslands áformar að breyta skrifstofubyggingu félagsins í Álftamýri 9 í hótel eða gistiheimili.
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur hefur tekið jákvætt í erindið, en þó með skilyrðum.
Húsið á lóð nr. 9 við Álftamýri er steinsteypt bygging, sambyggð húsi nr. 7 við Álftamýri, byggt árið 1966. Byggingin er á tveimur hæðum auk kjallara og er skráð sem skrifstofuhúsnæði í fasteignaskrá.
Óskað var eftir afstöðu skipulagsfulltrúa til þess hvort heimild fengist til að breyta notkun húsnæðisins í gististað líkt og í Álftamýri 7. Sömuleiðis er óskað eftir upplýsingum um byggingarrétt á lóðinni. Í Álftamýri 7 er starfrækt Hótel Lotus.
Heimild: Mbl.is
Efni: Skrifstofa lögmanna verði hótel












