
Skortir samræmingu í myglugreiningum
Réttindi starfsfólks sem veikist vegna óheilnæms húsnæðis á vinnustað eru óljós. Helsti vandinn er að sanna orsakatengsl milli veikinda og rakaskemmda og myglu segir líffræðingur.
Greiningum á myglu í atvinnuhúsnæði fer ekki fjölgandi að sögn Sylgju Daggar Sigurjónsdóttur, líf- og lýðheilsufræðings hjá Verkvist. Það sem eykst er þekking á innivist, rakaskemmdum og myglu og hvað eru óheilnæmar vinnuaðstæður. Þörf er á samræmdum leiðbeiningum um úttektir á húsnæði og á meðan þær skortir eru heldur ekki til samræmdar tillögur um hvernig eigi að bregðast við og bæta úr.
„ Ég hef ekki séð beina aukningu. Þetta hefur bara því miður verið alltof algengt og alltof lengi. Það er kominn tími til að við skoðum þessi mál alvarlega og finnum einhverjar lausnir fyrir fólk í þessari stöðu því það er ömurleg staða að vera fullfrískur til vinnu en bara ekki á þeim vinnustað sem er í boði,“ segir Sylgja Dögg.
Réttindi starfsfólks eru óljós
Réttindi starfsfólks sem veikist sökum myglu eru óljós, segir Sylgja. Þó segi skýrt í lögum um vinnuvernd og reglum um hollustuhætti að atvinnurekandi beri ábyrgð á vinnuumhverfi og að það skaði ekki heilsu starfsfólks.
„Þetta er flókið mál. Þetta er bæði byggingarmál og heilbrigðismál. Það er mikilvægt að þessar fagstéttir skilji hver aðra og tali saman. Það sem flókið er að það er erfitt að sanna orsakatengslin beint, með blóðprufum eða einföldum prófunum. En það eru til alls konar greiningarlyklar og spurningalistar sem skera úr um það hvort einkennin tengist viðveru í ákveðnu húsnæði,“ segir Sylgja.
Von er á leiðbeiningum frá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun fljótlega varðandi faglegar úttektir á húsnæði og hvernig stofnanir geti samræmt sig, enda ekki vanþörf á, að mati Sylgju.
Heimild: Ruv.is
Efni: Skortir samræmingu í myglugreiningum











