Home Fréttir Í fréttum Skóflustunga nýrrar legudeildar við Sjúkrahúsið á Akureyri

Skóflustunga nýrrar legudeildar við Sjúkrahúsið á Akureyri

15
0
Skóflustunga nýrrar legudeildar við Sjúkrahúsið á Akureyri
Skóflustunga tekin að undirritun lokinni. Ljósmynd/Aðsend

Skóflustunga nýrrar legudeildar við Sjúkrahúsið á Akureyri

Alma Möller heilbrigðisráðherra, Guðmundur Viðar Gunnarsson og Hjalti Steinþórsson frá GV- Gröfum undirrituðu í dag verksamning við Nýjan Landspítala ohf. um jarðvinnu vegna byggingar nýrrar legudeildar við Sjúkrahúsið á Akureyri.

Heilbrigðisráðherra tók til máls. mbl.is/Margrét Þóra

Þetta kemur fram í tilkynningu. Samninginn vottuðu Guðjón Hauksson, forstjóri SAk og Sigríður Inga Rúnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur hjá SAk.

Að undirritun lokinni tók ráðherra skóflustungu ásamt Jóhannesi G. Bjarnasyni, formanni Hollvinasamtaka SAk, Guðmundu Birnu Kristjánsdóttur, sjúkraliða SAk, Gunnari Svavarssyni, framkvæmdastjóra NLSH, Guðjóni Haukssyni, forstjóra SAk, Valdísi Eyju Pálsdóttur, formanni Geðverndarfélags Akureyrar og Árna Jóhannessyni, lækni SAk.

Frá skóflustungunni. mbl.is/Margrét Þóra

Legudeildarbyggingin verður 13.600 m²

Legudeildarbyggingin verður 13.600 m² en í nýbyggingunni, sem tengist núverandi húsnæði, verður komið upp aðstöðu fyrir skurðlækningadeild þar sem verða 36 stofur, lyflækningadeild með 36 stofur og geðdeild með 12 sjúkrastofum og tveimur öryggiseiningum fyrir geðgjörgæslu, ásamt stoðrýmum og dag- og göngudeild geðdeildar.

Verksamningur undirritaður. Ljósmynd/Aðsend

Gert er ráð fyrir að nýbyggingin verði staðsett sunnan við núverandi byggingar á lóð SAk og tengd núverandi húsnæði.

Minniháttar breytingar verða gerðar á núverandi húsnæði vegna tengingar við nýbyggingu og breytinga á vörumóttöku.

mbl.is/Margrét Þóra

Nýbyggingin mun taka yfir núverandi bílastæði á lóðinni og þarf að færa þau bílastæði til ásamt því að fjölga bílastæðum miðað við aukið byggingarmagn á lóðinni.

Heimild: Mbl.is

Efni: Skóflustunga nýrrar legudeildar við Sjúkrahúsið á Akureyri