Skoða að gera 100 metra fljótandi öldubrjót
Kópavogsbær vill koma fyrir 100 metra löngum fljótandi öldubrjóti í Kópavogshöfn til að draga úr sjógangi sem myndast þar í hvössum suðvestanáttum.
Um er að ræða þungar steyptar einingar sem eiga að taka kraftinn úr öldunum áður en þær ganga inn í höfnina. Brjóturinn yrði 100 metra langur og fimm metra breiður.
Tillagan var tekin fyrir á fundi bæjarráðs og er meðal annars rökstudd með skemmdum á bátum, erfiðum aðstæðum við flotbryggjur og sjávarágangi við nýja íbúðabyggð.
Bátar skemmdust
Í greinargerð Kópavogsbæjar kemur fram að ytri höfnin sé berskjölduð í suðvestanátt. Þegar sjávarstaða er há getur sjór gengið yfir grjótvarnir og að byggingum.
Ferðaþjónustufyrirtæki sem hóf RIB-bátasiglingar frá höfninni árið 2023 varð fyrir skemmdum á bátum vegna öldugangs. Í kjölfarið þurfti að taka bátana upp úr sjó þegar óhagstæðu veðri var spáð. Rekstrinum var hætt í lok árs 2025.
Notendur hafnarinnar hafa einnig kallað eftir auknu skjóli. Siglingaklúbburinn Ýmir og félag smábátaeigenda benda meðal annars á að sjógangur geti gert notkun flotbryggjunnar varasama.
Hjálparsveit skáta í Kópavogi er með fjóra báta en aðeins einn þeirra getur nú legið við flotbryggju. Hinir þrír eru geymdir á kerrum og þarf að sjósetja þá þegar útkall berst.
Hægt að ganga út á brjótinn
Öldubrjóturinn yrði gerður úr stórum steypueiningum sem fljóta en ná djúpt niður í sjóinn. Þær eiga að brjóta öldurnar þannig að sjórinn hafnarmegin verði mun lygnari.
Brjóturinn yrði flatur að ofan og hægt að ganga eftir honum þegar veður leyfir. Þar yrði handrið og hægt að loka aðgangi í miklum vindi.
Sambærileg lausn er notuð við Ægisgarð í Reykjavíkurhöfn. Kópavogsbær telur framkvæmdina geta aukið öryggi og bætt aðstöðu fyrir smábáta og björgunarbáta, auk þess að verja hafnarsvæðið fyrir sjávarágangi.
Heimild: Mbl.is
Efni: Skoða að gera 100 metra fljótandi öldubrjót












