Home Fréttir Í fréttum „Skelfileg og vanhugsuð breyting“

„Skelfileg og vanhugsuð breyting“

94
0
„Skelfileg og vanhugsuð breyting“
Þegar fallið var frá áformum um mislæg gatnamót var ekki farið í nýtt umhverfismat á svæðinu. mbl.is/Karítas

„Skelfileg og vanhugsuð breyting“

„Ég fékk litlar undirtektir við þessum skrifum mínum á sínum tíma, en ég held að það sé nú bara að koma í ljós að þetta er skelfileg og vanhugsuð breyting á gatnamótunum og alls ekki í takt við áherslur í samgönguframkvæmdum um að auka umferðaröryggi og umferðarflæði.“

Þetta segir Bjarni Gunnarsson, umferðar- og vegaverkfræðingur, en hann hefur undanfarin fimm ár gagnrýnt opinberlega á vettvangi Morgunblaðsins framkvæmdina á ljósastýrðum gatnamótum Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar þar sem upprunalega átti að reisa fullbúin mislæg gatnamót en vikið var frá því að kröfu þáverandi borgaryfirvalda í Reykjavík.

Heimild: Mbl.is