Sérkennilegt að húsið standi autt
Menntaskólinn í Reykjavík hefur lengi verið í húsnæðisvanda. Sólveig Hannesdóttir rektor skólans vill stækka skólann en til þess þarf skólinn betra húsnæði.
„Við erum í leiguhúsnæði núna, sem við leigðum til átta ára og það eru fjögur ár búin af þeim átta árum núna,“ segir Sólveig, en nemendur á öðru ári í skólanum eru með kennslustofur að Austurstræti 17 í miðbæ Reykjavíkur.
„Við þurfum að láta bæta húsnæðið sem við eigum, eða sem ríkið á, á menntaskólareitnum. Það er risastórt hús sem þarf að gera upp.“
Sólveig á þar við hús sem heitir Casa Christi. Húsið stendur fyrir aftan byggingu Gamla skólans og hefur staðið autt síðan 2021.
„Það þarf að taka það algjörlega í gegn og byggja við það.“
„Við erum að reyna að ýta á að það verði tekin ákvörðun um hvað verði gert við þetta hús.“
Húsin andlit miðbæjarins
Aðspurð segir hún sérkennilegt að húsið hafi staðið autt öll þessi ár, þá sérstaklega með tilliti til staðsetningar þess.
„Þetta er í miðbæ Reykjavíkur og ég segi þetta ekki með neinum hroka, en ég meina þessi hús eru andlit miðbæjarins. Menntaskólinn í Reykjavík og svo torfan þarna við hliðina og Casa Christi. Þetta var fallegt hús, það er byggt 1903 og við erum með áætlun um það hvernig er hægt að endurbyggja það og byggja við það viðbyggingar.“
Hún segir að hlutir sem þessir strandi þó ávallt á skorti á fjármagni.
Sólveig segist jafnframt vonast til þess að sjá enn meiri aðsókn við skólann eftir nýjar breytingar sem taka gildi í haust, en umsóknum í skólann fjölgaði töluvert frá því í fyrra.
„Nú verða í fyrsta skipti yfir átta hundruð nemendur í mjög mörg ár í haust, sem er bara mjög gleðilegt. Þessir átta hundruð nemendur, þeir þurfa að sitja alveg bara þétt saman. Það er hver einasti stóll tekinn.“
Horfðu á þáttinn í heild sinni:
Heimild: Mbl.is
Efni: Sérkennilegt að húsið standi autt












