
Segir nýjan veg ekki skemma Landmannalaugar
Búið er að gera veg með ræsislögn yfir pollinn svokallaða í Landmannalaugum, þar sem afrennsli úr náttúruböðum lauganna hefur hingað til safnast saman.
Nokkuð skiptar skoðanir eru um framkvæmdina ef marka má ummæli á samfélagsmiðlum, en þar lýsa netverjar yfir óánægju með hana og segjast óttast að nú muni illa upplýstir ferðamenn streyma á vanbúnum smábílum í Landmannalaugar með tilheyrandi raski og troðningi.

Ágúst Freyr Bjartmarsson, yfirverkstjóri Vegagerðarinnar á Vík í Mýrdal, segist skilja áhyggjur þeirra sem gagnrýna framkvæmdina en hann telur ekki að hún muni raska frið svæðisins.
Undirbúningur framkvæmdarinnar hefur tekið um eitt ár, en vegagerðin sjálf hófst fyrr í vor. Ágúst bendir á að hún hafi verið unnin í nánu samstarfi við Náttúruverndarstofnun og að hún valdi ekki óafturkræfum breytingum á umhverfi eða náttúru Landmannalauga.

Tug milljóna króna tjón á hverju sumri
Ágúst segir að ráðist hafi verið í framkvæmdina þar sem á sumri hverju valdi ferðamenn tugmilljóna tjóni á vanbúnum bílaleigubílum, þegar þeir reyni að þvera þessa síðustu hindrun inn í Landmannalaugar.
„Tjónið sem þessi pollur veldur á hverju ári eru margir tugir milljóna. Í þennan poll rennur vatnið úr heitu laugunum en hann hefur núna dýpkað með hverju ökutæki sem fer yfir hann. Það eru því margir sem hafa komist fyrst yfir ána en svo lent í því að festa og sökkva ökutækinu sínu þarna,“ segir Ágúst í samtali við mbl.is.

Hann ítrekar því að markmiðið með þessari vegagerð sé ekki að reyna skemma upplifun fólks af svæðinu heldur einungis að reyna koma í veg fyrir fjárhagslegt tjón og bendir hann á að vegurinn að Landmannalaugum sé og verði áfram ófær fyrir minni fólksbíla.
„Ég skil vel að mönnum finnist gaman að leika sér á stórum jeppum og keyra yfir ár, en þetta er einfaldlega spurning um að minnka fjárhagslegt tjón á svæðinu.“ segir Ágúst.
Heimild: Mbl.is
Efni: Segir nýjan veg ekki skemma Landmannalaugar











