
Samið um niðurrif leikskólans
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur hefur ákveðið að ganga að tilboði fyrirtækisins H2Orku ehf. um niðurrif á leikskólanum Laugasól við Leirulæk.
Tilboðið hljóðaði upp á rúmar 25 milljónir. Var það aðeins 35% af kostnaðaráætlun, sem hljóðaði upp á 71,2 milljónir.
Önnur tilboð voru einnig langt undir kostnaðaráætlun. Fagurverk ehf. bauð tæpar 29 milljónir og Berserkir ehf. rúmar 34 milljónir.
Borgarráð samþykkti í desember 2024 að heimila umhverfis- og skipulagssviði að hætta framkvæmdum og segja upp verksamningi við verktaka um viðgerðir og endurbætur á leikskólanum Laugasól, Leirulæk 6.
Heimild: Mbl.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Þrjú tilboð í niðurrif Laugasólar – lægsta tilboð aðeins 35% af kostnaðaráætlun
Sjá frétt: Samið um niðurrif leikskólans











