
Saksóknari fellir niður mál tengt andláti Lúðvíks
Embætti héraðssaksóknara hefur fellt niður mál á hendur fimm einstaklingum sem höfðu réttarstöðu sakbornings í tengslum við andlát Lúðvíks Péturssonar. Hann lést þegar hann féll niður um jarðfall við jarðvinnu í Grindavík í janúar 2024.
Tveir þeirra sem höfðu réttarstöðu sakbornings voru starfsmenn Náttúruhamfaratrygginga Íslands, tveir störfuðu hjá verkfræðistofunni Eflu og einn hjá verktakafyrirtækinu sem Lúðvík starfaði hjá.
Júlí Karlsson, aðstoðarsaksóknari hjá embætti héraðssaksóknara, staðfesti við mbl.is að málið hefði verið fellt niður en hafnaði því að afhenda greinargerð með rökstuðningi fyrir niðurstöðunni.
Heimild: Mbl.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Rannsaka aðgerðir eða aðgerðaleysi í aðdraganda banaslyss í Grindavík
Efni: Saksóknari fellir niður mál tengt andláti Lúðvíks











