Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Kaupa þarf upp fasteignir vegna Sæbrautarstokks

Kaupa þarf upp fasteignir vegna Sæbrautarstokks

187
0
Ljóst er að sumar byggingar við götuna þurfa að víkja svo bílar komist framhjá stokkframkvæmdum. Þá þarf að færa nýju göngubrúna. mbl.is/sisi

Eitt tilboð barst í verkhönnun á bráðabirgðaleiðum vegna framkvæmda við Sæbraut í stokk. Um er að ræða gerð verkhönnunargagna fyrir niðurrif, aðstöðusköpun og hjáleiðir.

Vegna verkefnisins þarf að ráðast í uppkaup fasteigna næst Sæbraut.

Tilboðið var frá verkfræðistofunni Eflu hf. Reykjavík og hljóðaði upp á rúmlega 101 milljón króna. Var tilboðið rétt undir áætluðum verktakakostnaði Vegagerðarinnar sem var 105,3 milljónir króna.

Verkinu skal að fullu lokið 30. nóvember 2026.

Fyrirhugað er að Sæbraut verði sett í stokk á um 1.000 metra löngum kafla sem nær frá Miklubraut og norður fyrir gatnamót Kleppsmýrarvegar og Skeiðarvogs (við Húsasmiðjuna).

Heimild: Mbl.is