
Ríkið herðir kröfur til ræstingaútboða
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur gefið út ný viðmið fyrir útboð á ræstingum hjá ríkisstofnunum. Þeim er ætlað að koma í veg fyrir undirboð, óhóflegt vinnuálag og brot á kjarasamningsbundnum réttindum ræstingafólks.
Frá þessu greindi fjármála- og efnahagsráðuneytið með tilkynningu fyrir helgi en í tilkynningu frá Eflingu er hinum nýju viðmiðum fagnað. Þá segir þar enn fremur að þau séu afrakstur áralangrar baráttu félagsins.
Helsta breytingin felst í auknum kröfum um gagnsæi varðandi þann tíma sem áætlaður er til ræstingar. Þegar verkefni nær yfir meira en þúsund fermetra skal óháður aðili meta þann tímafjölda sem verkið krefst áður en útboð fer fram.
Þá er markmiðið að koma í veg fyrir að fyrirtæki vanáætli launakostnað og geri starfsfólki að vinna undir óeðlilega mikilli afkastakröfu. Samkvæmt viðmiðunum skal hafna samningsgerð ef tilboð samræmist ekki lágmarkskröfum kjarasamninga um afköst.
Heimild: Mbl.is
Efni: Ríkið herðir kröfur til ræstingaútboða











