Home Fréttir Í fréttum Rannsókn á brunanum á Stuðlum lokið og tíu með stöðu sakbornings

Rannsókn á brunanum á Stuðlum lokið og tíu með stöðu sakbornings

48
0
Rannsókn á brunanum á Stuðlum lokið og tíu með stöðu sakbornings
Lögreglumenn á vettvangi brunans á Stuðlum í október 2024. RÚV – Ragnar Visage

Rannsókn á brunanum á Stuðlum lokið og tíu með stöðu sakbornings

Lögregla hefur lokið rannsókn á brunanum á Stuðlum í október 2024. Tíu hafa réttarstöðu sakbornings og málið er komið til ákærusviðs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á brunanum á meðferðarheimilinu Stuðlum, þar sem drengur lést, er lokið og málið verið afhent ákærusviði embættisins. Tíu hafa réttarstöðu sakbornings í málinu.

Þessu greinir Morgunblaðið frá, en Elín Agnes Eide, yfirlögregluþjónn á miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar, staðfesti þetta.

Bruninn varð 19. október 2024 og rannsóknin því tekið rúmlega 20 mánuði. Eldur kviknaði í álmu þar sem börn eru neyðarvistuð, með þeim afleiðingum að hinn 17 ára gamli Geir Örn Jacobsen lést.

Í skýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um brunann segir að hægt hefði verið að koma í veg fyrir mannslát ef brunavarnir hefðu verið virkar í samræmi við brunahönnun.

Heimild: Ruv.is