Home Fréttir Í fréttum Ræða sölu á Blikastaðalandi fyrir 14-16 milljarða

Ræða sölu á Blikastaðalandi fyrir 14-16 milljarða

159
0
Ræða sölu á Blikastaðalandi fyrir 14-16 milljarða
Blikastaðarland framkvæmdir hafnar á atvinnuhúsnæði á svæðinu. mbl.is/Árni Sæberg

Ræða sölu á Blikastaðalandi fyrir 14-16 milljarða

Arion banki hefur ákveðið að ganga til einkaviðræðna við Íslensk verðbréf, dótturfélags Skaga, fyrir hönd óstofnaðs sérhæfðs sjóðs um kaup sjóðsins á öllu hlutafé dótturfélags Arion banka, Landeyjar, í Blikastaðalandi ehf.

Blikastaðaland ehf. á og þróar Blikastaðalandið í Mosfellsbæ, en það kaupverð sem er til umræðu er innan þeirra 14-16 milljarða sem áður hafði verið tilkynnt um að væri söluverðið.

Fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar að Íslensk verðbréf séu í samstarfi við fasteignaþróunarfélagið Klasa ehf. um kaupin, en Klasi yrði þróunaraðili verkefnisins og kjölfestufjárfestir í sjóðnum. Klasi er í eigu Haga, Heima og KLS eignarhaldsfélags.

„Viðræður aðila byggja á tilboði sem sjóðurinn lagði fram í öðrum fasa söluferlis Blikastaðalands ehf. Vonir standa til að viðræðum um kaupin ljúki fyrir lok þessa árs með gerð kaupsamnings og að kaupin komi til framkvæmda á fyrsta ársfjórðungi 2027,“ segir í tilkynningunni.

Blikastaðaland. Kort/mbl.is

Blikastaðaland ehf. er nú metið upp á 7,6 milljarða í bókum Arion banka, en þar sem enn er til staðar óvissa varðandi fyrirvara tilboðs Íslenskra verðbréfa hefur ekki verið tekin ákvörðun um að uppfæra bókfært verðmat á þessum tímapunkti.

Heimild: Mbl.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Unnið að deiliskipulagi fyrsta áfanga uppbyggingar í Blikastaðalandi

Efni: Ræða sölu á Blikastaðalandi fyrir 14-16 milljarða