
Ráðast í stórverk á Selfossi
Héðinshurðir, dótturfélag Héðins, hafa undirritað samning við FSRE um endurnýjun á glerþaki Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi.
Í byrjun júní fluttu Héðinshurðir í nýtt og stærra húsnæði með rúmgóðum sýningarsal að Selhellu 2 í Hafnarfirði. Nokkrum mánuðum áður, í mars, tók Gísli Kristjánsson við sem framkvæmdastjóri félagsins.
Eitt fyrsta verkefni hans var því að stýra flutningum félagsins samhliða því að ganga frá samningi um endurnýjun eins þekktasta glerþaks landsins.
„Nýja húsnæðið er gríðarleg breyting fyrir okkur og líka viðskiptavini Héðinshurða, sem geta nú komið og skoðað vöruúrvalið með mun betri hætti en áður,“ segir Gísli. Hann bætir við að nýja húsnæðið bjóði jafnframt upp á aukið svigrúm til vaxtar og fleiri verkefna.
Hallandi glerþakið á suðurhlið Odda, aðalbyggingar FSU, er um 36 ára gamalt og stór hluti glersins er upprunalegur. Samkvæmt útboðsgögnum hefur þakið lekið mestan hluta líftíma síns og fjölmargar tilraunir til viðgerða ekki dugað til lengdar.
Heimild: Vb.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Breytingar á eigendahópi Héðins hf.
Efni: Ráðast í stórverk á Selfossi











