Home Fréttir Í fréttum Ósáttur með byggingu risahótels

Ósáttur með byggingu risahótels

98
0
Ósáttur með byggingu risahótels
Hótelið mun rísa við Keflavíkurflugvöll. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ósáttur með byggingu risahótels

Fulltrúar Reykjanesbæjar virðast ekki vera sáttir við það að Isavia hyggist reisa gríðarstórt hótel við Keflavíkurflugvöll.

Á fundi atvinnu- og hafnarráðs bæjarins í lok júnímánaðar kom Halldór K. Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarráðs Reykjanesbæjar, fyrir ráðið með upplýsingagjöf þar sem hann velti því upp hvort Isavia, sem opinbert hlutafélag, væri komið út fyrir starfssvið sitt með uppbyggingunni,

Greint var frá áformunum árið 2023 en hótelið mun telja 200 herbergi en í öðrum áfanga framkvæmdanna væri hægt að tvöfalda fjöldann og yrði hótelið þá það stærsta á Íslandi í herbergjum talið.

Skerðir samkeppnisstöðu

Halldór lýsti því yfir í upplýsingagjöf sinni að hann teldi að uppbyggingin vekti upp spurningar varðandi hlutverk Isavia.

Telur Halldór að uppbygging hótels innan áhrifasvæðis Isavia skerði samkeppnisstöðu annarra gistimöguleika á Suðurnesjum. Hótelið geti því haft neikvæð áhrif á uppbyggingu ferðaþjónustuaðila.

Hafnar- og atvinnuráð Reykjanesbæjar telur rétt að bæjaryfirvöld óski eftir fundi með forsvarsmönnum Isavia til að fá skýringar á málinu.

Heimild: Mbl.is