Home Fréttir Í fréttum Sjúkrahúsið á Akureyri – jarðvinna, götur, veitur og bílastæði – Opnun útboðs

Sjúkrahúsið á Akureyri – jarðvinna, götur, veitur og bílastæði – Opnun útboðs

439
0
Mynd: Nýr Landspítali

Opnun útboðs:

Í vikunni voru opnuð tilboð í útboði I2083: NLSH – Sjúkrahús Akureyrar Jarðvinna Götur, veitur og bílastæði

Tvö tilboð bárust í verkið, lægsta tilboð var frá G.V. Gröfur ehf. 391 m.kr. eða 57% af kostnaðaráætlun og Nesbræður buðu 424 m.kr. Kostnaðaráætlun verkkaupa var 683 m.kr.

Verkið er fyrsti áfangi verkframkvæmda við Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) vegna stækkunar á sjúkrahúsinu til suðurs þar sem nú eru bílastæði. Við þessa stækkun þarf að gera ný bílastæði og endurnýja veitukerfi á lóð sjúkrahússins á milli Þórunnarstrætis og Búðartraðar.

Stærstu verkliðir eru

– Gröftur á jarðefnum 50.000 m3

– Malbikun 7.400 m2

Heimild: Nýr Landspítali