Home Fréttir Í fréttum Tré og straumur ehf. með lægsta tilboð í hreinsistöð við Geitanes –...

Tré og straumur ehf. með lægsta tilboð í hreinsistöð við Geitanes – Opnun útboðs

263
0

Opnun útboðs:


Lægsta tilboð í fullnaðarfrágang hreinsistöðvar við Geitanes í Árborg nam rúmum 260 milljónum króna þegar tilboð voru opnuð í verkefnið.

Málið var tekið fyrir á fundi eigna- og veitunefndar Árborgar þann 5. maí 2026 þar sem farið var yfir innkomin tilboð vegna útboðs á hreinsistöðinni við Geitanes.

Tré og straumur með lægsta tilboðið

Alls bárust fimm tilboð í verkið. Lægsta tilboðið kom frá Tré og straumi ehf. sem bauð 260.757.985 krónur eða 104,7% af kostnaðaráætlun verksins.

K16 ehf. bauð 264.948.297 krónur, Tindhagi ehf. bauð 283.272.115 krónur, Fortis ehf. bauð 310.020.578 krónur og Vörðufell ehf. bauð 314.040.017 krónur.

Kostnaðaráætlun verksins hljóðaði upp á 248.954.999 krónur.

Fullnaðarfrágangur hreinsistöðvar við Geitanes

Eigna- og veitunefnd fól sviðsstjóra mannvirkja- og umhverfissviðs að ganga til samninga við lægstbjóðanda, að því gefnu að kröfur útboðsgagna verði uppfylltar.

Framkvæmdin snýr að fullnaðarfrágangi hreinsistöðvar við Geitanes í Sveitarfélaginu Árborg.

Opnunarskýrsla útboðs_Hreinsistöð fullnaðarfrágangur_300426.pdf

Heimild: Árborg