| Frá fundi bæjarráðs Árborgar þann 28.07.2022
Á fundi eigna- og veitunefndar 6. júlí sl. var farið yfir gögn er vörðuðu fyrirhugað útboð í jarðvinnu vegna nýrrar hreinsistöðvar við Geitanes og fól nefndin sviðsstjóra að bjóða út jarðvinnu vegna nýrrar hreinsistöðvar í samræmi við fyrirliggjandi gögn. Útboðinu er lokið með eftirfarandi niðurstöðu: Tilboð í verkið Útrás og jarðvinna hreinsistöðvar.
Þjótandi ehf 145.575.800 kr. – 62,8% af kostnaðaráætlun. Kostnaðaráætlun 231.980.000 kr. öll verð með vsk. Lagt er til við bæjarráð að fela sviðsstjóra að ganga til samninga við lægstbjóðanda svo fremi sem hann uppfylli kröfur útboðsgagna. |
| Bæjarráð samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra að ganga til samninga við lægstbjóðanda svo fremi sem hann uppfylli kröfur útboðsgagna. |
Sign in
Welcome! Log into your account
Forgot your password? Get help
Password recovery
Recover your password
A password will be e-mailed to you.












