Opinber útboð langt undir áætlunum
Rétt rúmur helmingur þeirra opinberu útboða sem boðuð voru á árunum 2022–2025 varð að veruleika.
Rétt rúmur helmingur þeirra opinberu útboða sem boðuð voru á árunum 2022–2025 varð að veruleika. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samtökum iðnaðarins, en þar segir að fjárfestingin sjálf hafi þó fylgt áætlunum mun betur.
Níu stærstu opinberu verkkauparnir sem taka þátt í árlegu Útboðsþingi Samtaka iðnaðarins boðuðu útboð fyrir samtals 737,3 milljarða króna á tímabilinu.
Í greiningu SI er verkkaupunum skipt í þrjá hópa. Til A-hluta ríkissjóðs teljast Vegagerðin, Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE) og Nýr Landspítali. Til C-hluta teljast Landsvirkjun, Landsnet og Isavia, en þriðji hópurinn nær til Reykjavíkurborgar, Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Veitna.
Sveitarfélögin og félög þeirra stóðust áform sín best. Þau buðu út 94% af því sem þau höfðu boðað og fjárfestu fyrir 88% af áætlun.
Hjá A-hluta ríkissjóðs námu raunútboð 62% af áformum en raunfjárfesting 101%. Hjá C-hluta fóru aðeins 37% boðaðra útboða í gegn, en fjárfestingin nam 75% af áætlun.
Heimild: Vb.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: 20.01.2026 Skráning á Útboðsþing SI hafin
Efni: Opinber útboð langt undir áætlunum












