Home Fréttir Í fréttum „Ófremdarástand“ á íbúðamarkaði

„Ófremdarástand“ á íbúðamarkaði

80
0
„Ófremdarástand“ á íbúðamarkaði
Margar fullbúnar óseldar íbúðir eru á markaðnum og hefur fyrirtækið ÞG Verk þurft að hægja á uppbyggingu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Ófremdarástand“ á íbúðamarkaði

Staðan á íbúðamarkaði er erfið. Háir vextir gera byggingaverktökum erfitt fyrir að fjármagna verkefni og þeir sitja uppi með óseldar íbúðir.

Samtök iðnaðarins (SI) hafa kallað eftir því að Seðlabankinn haldi meginvöxtum óbreyttum í næstu vaxtaákvörðun, 19. ágúst. Þrátt fyrir að verðbólga sé enn langt yfir markmiði bankans telja samtökin að frekari vaxtahækkanir geti verið of mikið aðhald við núverandi aðstæður.

Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri SI hefur jafnframt varað við erfiðri stöðu í byggingariðnaðinum. Samkvæmt upplýsingum samtakanna hafa alvarleg vanskil greinarinnar hjá stóru viðskiptabönkunum þremur nær þrefaldast á fyrri helmingi ársins.

Heimild: Mbl.is