
Nýtt torg verður á Stjórnarráðsreit
Áform um uppbyggingu á svokölluðum Stjórnarráðsreit eru á áætlun og útlit fyrir að hún geti hafist innan tíðar. Skipulagslýsing fyrir reitinn var auglýst í sumar og athugasemdir sem bárust virðast ekki munu tefja ferlið.
Búist er við að tillaga að nýju deiliskipulagi verði kynnt í umhverfis- og skipulagsráði nú í haust. Áætlanir gera ráð fyrir að deiliskipulag geti verið samþykkt í desember á þessu ári.
Verði áformin að veruleika bætist við talsvert af íbúðarhúsnæði á þessum eftirsótta stað auk þess sem rými verða fyrir ýmsa þjónustu. Þá verður nýtt torg miðpunktur svæðisins.
Heimild: Mbl.is
Efni: Nýtt torg verður á Stjórnarráðsreit











