Home Fréttir Í fréttum Nýtt hjúkrunar­heimili á hverju ári

Nýtt hjúkrunar­heimili á hverju ári

150
0
Nýtt hjúkrunar­heimili á hverju ári
Áætluð verklok hjúkrunarheimilisins á Hamranesi í Hafnarfirði eru í mars næstkomandi. Myndin var tekin í september. Samsett mynd: Vb.is

Nýtt hjúkrunar­heimili á hverju ári

„Þú getur litið á þetta eins og litla kubba af hjúkrunarrýmum sem þú getur síðan kubbað saman á mismunandi hátt.“

Íslenskar fasteignir er með nokkur stór fasteignaþróunarverkefni í farvatninu, þar á meðal hjúkrunarheimili úr forsmíðuðum einingum. Verið er að byggja slíkt hjúkrunarheimili við Hamranes í Hafnarfirði sem mun innihalda 99 hjúkrunarrými. Áætluð verklok eru í mars næstkomandi.

„Við erum í grunninn búin að forhanna og -byggja hjúkrunarheimili sem uppfylla alla staðla á Íslandi. Þú getur litið á þetta eins og litla kubba af hjúkrunarrýmum sem þú getur síðan kubbað saman á mismunandi hátt,“ segir Þórir Kjartansson, framkvæmdarstjóri og annar eigenda Íslenskrar fjárfestingar, móðurfélags Íslenskra fasteigna.

Hann segir að með því að reisa hjúkrunarheimili með þessum hætti sé hægt að hraða uppbyggingu sem sé nauðsynleg vegna öldrunar þjóðar. Hann bendir á að áætlað sé að byggja þurfi 200-250 hjúkrunarrými á ári, um sexfalt meira en áður hafi verið gert, til að mæta þörf í heilbrigðiskerfinu.

„Við reiknum með því að byggja árlega a.m.k. eitt svoleiðis hjúkrunarheimili næstu árin og jafnvel áratugina til leggja okkar að mörkum við að leysa fyrirliggjandi vanda vegna skorts á hjúkrunarrýmum.“

Íslensk fjárfesting, sem Þórir og Arnar Þórisson stofnuðu árið 1999, einblínir í dag á fjögur kjarnasvið; ferðaþjónustu, heilbrigðisþjónustu, fasteignir og útivist og hreyfing. Meðal dótturfélaga eru Sóltún heilbrigðisþjónusta, Kilroy, Útilíf, Flóra hótels og fasteignaþróunarfélagið Íslenskar fasteignir.

Heimild: Vb.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Hjúkrunarheimili fyrir 99 íbúa rýkur upp

Efni: Nýtt hjúkrunar­heimili á hverju ári