Home Fréttir Í fréttum Nýtt Hafnarhús byggt í Sundahöfn

Nýtt Hafnarhús byggt í Sundahöfn

69
0
Nýtt Hafnarhús
Áformað er að hið nýja Hafnarhús muni rísa við norðurenda bakkans, hægra megin á myndinni. Morgunblaðið/Eggert

Nýtt Hafnarhús

Stjórn Faxaflóahafna hefur falið Gunnari Tryggvasyni hafnarstjóra að vinna að áformum um byggingu nýrra höfuðstöðva fyrirtækisins.

Miðað verði við að nýtt Hafnarhús rísi á lóð við Skarfabakka í Sundahöfn. Þar verði sameinuð undir eitt þak sú starfsemi sem í dag fer fram í Hafnarhúsi við Tryggvagötu og Bækistöð við Fiskislóð, í návígi við þungamiðju starfsemi félagsins í Sundahöfn.

Með þessu yrði svæðið við norðurenda Skarfabakka að „heimatorfu“ Faxaflóahafna. Þar yrðu Hafnarhúsið, farþegamiðstöðin Vör og dráttarbátafloti fyrirtækisins við bryggju.

Heimild: Mbl.is