Home Fréttir Í fréttum Nýr Hringvegur um Hornafjörð opnaður 24. júní – leiðin styttist um tæpa...

Nýr Hringvegur um Hornafjörð opnaður 24. júní – leiðin styttist um tæpa 15 kílómetra

23
0
Nýr Hringvegur um Hornafjörð opnaður 24. júní – leiðin styttist um tæpa 15 kílómetra
Ný brú yfir Hoffellsá er ein af þremur nýjum brúm á leiðinni. Myndir: Vegagerðin

Nýr Hringvegur um Hornafjörð opnaður 24. júní – leiðin styttist um tæpa 15 kílómetra

Nýr Hringvegur um Hornafjörð verður formlega opnaður miðvikudaginn 24. júní 2026 klukkan 15:00. Með framkvæmdinni styttist Hringvegurinn um 12 kílómetra og leiðin til Hafnar í Hornafirði um 14,6 kílómetra.

Opnunarathöfnin fer fram á nýrri brú yfir Hornafjarðarfljót og verður nýi vegkaflinn opnaður fyrir almennri umferð að athöfn lokinni. Að vígslu lokinni verður boðið til kaffisamsætis í félagsheimilinu Holti á Mýrum þar sem öll eru velkomin.

Framkvæmdin er ein umfangsmesta vegaframkvæmd síðustu ára á Íslandi. Lagðir voru tæpir 19 kílómetrar af nýjum Hringvegi, um 9 kílómetrar af tengi- og hliðarvegum og byggðar fjórar nýjar tvíbreiðar brýr sem eru samtals 468 metrar að lengd.

Nýja brúin yfir Hornafjarðarfljót.

Helstu mannvirki verkefnisins

  • Nýr Hringvegur (1), alls um 18,5 km
  • Tengivegir, alls um 4,4 km
  • Hliðarvegir, alls um 4,4 km
  • Brú yfir Djúpá, 52 m
  • Brú yfir Hornafjarðarfljót, 250 m
  • Brú yfir Hoffellsá, 114 m
  • Brú yfir Bergá, 52 m
  • Hringtorg við Hafnarveg og Nesjahverfi
  • Nýr áningarstaður við Brunnhól

Tveggja áratuga undirbúningur

Aðdragandi framkvæmdarinnar hefur verið langur. Fyrstu áætlanir um nýjan veg um Hornafjörð voru kynntar árið 2004. Fyrsti áfangi framkvæmdarinnar var boðinn út árið 2017 og fólst í gerð fimm kílómetra langrar vegfyllingar.

Árið 2021 voru tilboð í annan áfanga opnuð en öllum tilboðum hafnað. Verkefnið var síðan boðið út að nýju árið 2022 sem samvinnuverkefni með framkvæmd og fjármögnun. Samið var við Ístak hf. þann 14. júlí 2022 og framkvæmdir hófust um haustið sama ár.

Nýtt hringtorg tengir nýja Hringveginn við Hafnarveg.

Veggjald tekið upp í september

Hringvegur um Hornafjörð er fyrsta samvinnuverkefni Vegagerðarinnar samkvæmt lögum um samvinnuverkefni. Heildarkostnaður framkvæmdarinnar er áætlaður rúmlega 10 milljarðar króna.

Til að standa undir fjármögnun verkefnisins verður tekið upp veggjald frá og með 1. september 2026. Gjaldtakan verður alfarið sjálfvirk með númeraplötugreiningu og reikningar sendir mánaðarlega í heimabanka ökutækjaeigenda.

Samkvæmt lögum getur innheimta staðið í allt að 30 ár og er ætlað að standa undir byggingarkostnaði, rekstri, viðhaldi og þróun mannvirkisins.

Kvennakór Hornafjarðar syngur við vígsluna

Kvennakór Hornafjarðar mun flytja söng við opnunarathöfnina og í kaffisamsætinu sem á eftir fylgir. Kórinn vakti athygli árið 2020 þegar hann söng á öllum einbreiðum brúm í Austur-Skaftafellssýslu til að vekja athygli á mikilvægi nýrra tvíbreiðra brúa á svæðinu.

Vegurinn verður opnaður fyrir almenna umferð strax að lokinni vígsluathöfn þann 24. júní.

Heimild: Vegagerðin

Efni: Nýr Hringvegur um Hornafjörð opnaður 24. júní – leiðin styttist um tæpa 15 kílómetra