Home Fréttir Í fréttum Nýja Landsbankahúsið fyrsta byggingin á Íslandi með fullnaðarvottun BREEAM

Nýja Landsbankahúsið fyrsta byggingin á Íslandi með fullnaðarvottun BREEAM

67
0
Nýja Landsbankahúsið fyrsta byggingin á Íslandi með fullnaðarvottun BREEAM
Mynd: Landsbankinn

Nýja Landsbankahúsið fyrsta byggingin á Íslandi með fullnaðarvottun BREEAM

Nýtt höfuðstöðvahús Landsbankans við Reykjastræti 6 hefur orðið fyrsta byggingin á Íslandi til að hljóta fullnaðarvottun BREEAM með einkunninni „Frábært“ (e. Excellent). Bæði hönnun mannvirkisins og framkvæmd þess hafa nú hlotið sömu viðurkenningu.

Hönnun Reykjastrætis 6 hlaut BREEAM-vottun sumarið 2023 og nú hefur framkvæmd byggingarinnar og fullnaðarfrágangur einnig fengið einkunnina „Frábært“, sem er næsthæsta þrep BREEAM-vottunarkerfisins.

Þetta gerir Landsbankahúsið að fyrstu byggingu landsins sem hlýtur fullnaðarvottun BREEAM með þessari einkunn.

Strangar kröfur um sjálfbærni og gæði

BREEAM (Building Research Establishment Environmental Assessment Method) er eitt þekktasta vottunarkerfi heims fyrir sjálfbær mannvirki.

Við mat samkvæmt BREEAM er meðal annars horft til:

  • Umhverfis- og öryggisstjórnunar.
  • Gæða innivistar, þar á meðal hljóðvistar og loftgæða.
  • Náttúrulegrar og gervilýsingar.
  • Orkunýtni og rekstrarhagkvæmni.
  • Lágmörkunar á mengun og umhverfisáhrifum.
  • Sjálfbærni á byggingar- og rekstrartíma.

Öflugur hópur ráðgjafa og verktaka

Mikil áhersla var lögð á að velja reynslumikla samstarfsaðila til að ná þeim metnaðarfullu markmiðum sem sett voru fyrir verkefnið.

Að verkefninu komu meðal annars:

  • EFLA, sem sá um verkfræðihönnun.
  • ÞG Verk, sem annaðist uppsteypu mannvirkisins.
  • Íslenskir aðalverktakar (ÍAV), sem sáu um fullnaðarfrágang.
  • VSB verkfræðistofa, sem gegndi hlutverki umsjónaraðila fyrir Landsbankann.

Framkvæmdir við húsið stóðu yfir á árunum 2018 til 2023, en byggingin var tekin í notkun á árunum 2022 og 2023.

Hlaut steinsteypuverðlaun árið 2025

Á síðasta ári hlaut Reykjastræti 6 einnig steinsteypuverðlaun Steinsteypufélags Íslands, sem veitt eru árlega fyrir framúrskarandi notkun steinsteypu í mannvirkjagerð.

Verðlaunin eru veitt mannvirkjum þar sem saman fer frumleg og vönduð hönnun og útfærsla steinsteypulausna.

„Við settum markið hátt“

„Það er virkilega góður árangur að hafa tvöfalda BREEAM-vottun,“ segir Lilja B. Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans.

„Við settum markið hátt og unnum með frábærum hönnuðum og verktökum að byggingu hússins, sem eiga þakkir skildar fyrir gott verk. Við ákváðum að fara þessa leið því okkur var ofarlega í huga að það yrði hagkvæmt að byggja og reka húsið til framtíðar.“

Lilja segir jafnframt að mikilvægasta markmiðið hafi verið að skapa gott vinnuumhverfi fyrir starfsfólk.

„Húsið hefur reynst okkur virkilega vel og við erum stolt af því hvernig til tókst og hversu vel við höfum nýtt húsið, bæði fyrir starfsemina og ýmsa viðburði,“ segir hún.

Heimild: Landsbankinn

Efni: Nýja Landsbankahúsið fyrsta byggingin á Íslandi með fullnaðarvottun BREEAM